Lítið að marka mig?

Ég held að það sé vel við hæfi að nota þennan dag til að vekja þessa bloggsíðu af löngum dvala með því að rifja upp eigin skrif frá síðbúnum stuttbuxnaárum. Það er ekki laust við að það fari um mig hrollur við það verk og raunar nægir tilhugsunin ein til þess. Ég lét glepjast af því sem leit út fyrir að vera efnahagslegt góðæri. Ég hélt að það væri afleiðing af farsælli efnahagsstjórn sem byggðist á hægri sinnaðri hugmyndafræði. Það var aðalástæða þess að ég gekk til liðs við Sjálfstæðisflokkinn í byrjun aldarinnar. Haustið 2004 fór ég að taka þátt í pólitískum skifum með stofnun vefritisins Íhald.is. Þá ritstýrði ég um skeið vef Heimdallar, frelsi.is, auk þess að fá birtar greinar víðar, m.a. í dagblöðum. Ég hætti slíkum skrifum alfarið í árslok 2005 og sagði mig loks úr Sjálfstæðisflokknum haustið 2008 í kjölfar bankahruns. Það er mér ekki ljúft að bera niður í eigin skrif en kannski siðferðislega skylt nú á tímum uppgjörs: 

Ánægjuleg dæmi um vel heppnaða einkavæðingu eru sala ríkisbankanna, fyrst Fjárfestingabanka atvinnulífsins og svo Landsbankans og Búnaðarbankans. Ávinningurinn hefur skilað sér til alls þorra almennings þar sem aukin samkeppni hefur skapast og bankarnir farið að kappkosta að bjóða betri kjör. Í því sambandi má nefna lækkaða vexti á lánum til íbúðakaupa, þar sem bankarnir tóku nýverið að undirbjóða Íbúðalánsjóð – nokkuð sem ekki var í spilunum fyrir fáeinum misserum síðan. Eigendur bankanna hafa hagrætt í rekstrinum þannig að þrátt fyrir að kjör neytenda séu nokkru betri en áður er hagnaður bankanna líka meiri, sem skilar sér í fjárfestingum til eflingar atvinnulífsins. 

(Íhald.is, 2. mars 2005 - http://ihald.blog.is/blog/ihald/entry/43771/) 

Hvílíkt og annað eins kjaftæði! Mér er ljóst að ég hefði betur nýtt tímann í eitthvað annað en að grafa undir eigin trúverðugleika með skrifum sem þessum. Þau standa hins vegar eftir sem hörð áminning til mín um að skoða betur hvort skoðanir mínar séu byggðar á haldbærum rökum, sérstaklega ef ég ætla að bera þau á borð fyrir aðra. Ég gæti fundið ýmis fleiri skrif sem ég skammast min fyrir en læt þetta nægja í kvöld. 


mbl.is Ekkert að marka það sem þessi maður segir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Án 5% reglunnar væru Ómar, Margrét og Guðfríður Lilja inni í stað Álfheiðar, Ellerts og Ragnheiðar

Ómar Ragnarsson hefur réttilega bent á ósanngirni hinnar svonefndu 5% reglu, þ.e. þeirrar reglu sem kveður á um að þau framboð komi ein til álita við úthlutun jöfnunarsæta sem hlotið hafa a.m.k. 5% atkvæða á landsvísu. Væri þessi þröskuldur ekki til staðar heldur einungis byggt á hinni svonefndu d'Hondt-reglu (sem notuð er við úthlutun kjördæmissæta og jöfnunarsæta) hefði Íslandshreyfingin náð tveimur mönnum á þing og væri í oddaaðstöðu milli núverandi stjórnarflokka og stjórnarandstöðuflokka.

Þó ég teljist nú ekki til stuðningsmanna stjórnarandstöðuflokkanna get ég ekki annað en tekið undir að þessi regla veitir ósanngjarna niðurstöðu. Ekki veit ég fyrir víst hver helstu rökin fyrir setningu þessa þröskuldar voru á sínum tíma en skilst að þau hafi verið eitthvað á þá leið að óæskilegt væri að lítil framboð kæmu mönnum inn á Alþingi. Vandséð er að það sé óæskilegt fyrir aðra en þá flokka sem sitja fyrir á Alþingi og settu regluna. Rétt eins og nýleg lög um fjármál stjórnmálaflokka og stórfellda ríkisstyrki til þeirra framboða sem eiga þingmenn á Alþingi, slær þessi regla skjaldborg um þá stjórnmálaflokka sem hafa þegar fest sig í sessi og er ólýðræðisleg. Þjóðþrifamál væri að afnema hana.

 

Samkvæmt úrslitum kosninganna er röð jöfnunarmanna þessi:

1 Grétar Mar Jónsson F 

2 Kristinn H. Gunnarsson F

3 Jón Magnússon F

4 Höskuldur Þór Þórhallsson B

5 Steinunn Valdís Óskarsdóttir S

6 Álfheiður Ingadóttir V

7 Árni Páll Árnason S

8 Ellert B. Schram S

9 Ragnheiður Ríkharðsdóttir D

 

Án 5% reglunnar hefði röðin verið þessi:

1 Grétar Mar Jónsson F 

2 Margrét Sverrisdóttir I

3 Kristinn H. Gunnarsson F

4 Jón Magnússon F

5 Höskuldur Þór Þórhallsson B

6 Steinunn Valdís Óskarsdóttir S

7 Ómar Ragnarsson I

8 Guðfríður Lilja Grétarsdóttir V

9 Árni Páll Árnason S 


Löng og spennandi nótt

Klukkan rúmlega 6 að morgni og sólin komin hátt á loft. Stjórnin lafir enn og hefur gert síðustu klukkutímana - tíma sem hefur flogið áfram. Ekki er þó útséð um að dramatík verði þegar líður á morguninn. Helst eru það atkvæðin af vestfjörðum sem gætu átt eftir að breyta niðurstöðunni en mörg þeirra eru enn ótalin. Ekki er ólíklegt að þau gætu breytt röðun jöfnunarmanna. Sigríður Andersen í Reykjavík norður er síðasti jöfnunarmaðurinn inn eins og staðan er. Fylgi Frjálslyndra á vestfjörðum gæti hæglega orðið til þess að Magnús Þór Hafsteinsson ryddi henni úr vegi sem jöfnunarmaður í Reykjavík norður. Ég kemst þó ekki að því fyrr en síðar í dag þar sem tímabært er að slíta sig frá skjánum og koma sér í háttinn.
 
Mjög ólíklegt er að stjórnin starfi áfram saman þó hún haldi velli með eins manns meirihluta. Samstarfs Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar virðist langlíklegasti kosturinn og nokkuð góður sem slíkur. 

Staðfest byrjunarlið Liverpool - Gerrard á miðjunni

Já Drogba getur orðið hættulegur í kvöld! Sérstaklega í ljósi þess að Liverpool verður helst að halda hreinu til að eiga góða möguleika á að komast áfram.

Byrjunarliðið lítur svona út í kvöld:

Reina, Finnan, Riise, Carragher, Agger, Mascherano, Gerrard, Pennant, Zenden, Crouch, Kuyt.

Varamenn:  Padelli, Arbeloa, Hyypia, Fowler, Gonzalez, Alonso, Bellamy.

 

Skv. heimasíðu Liverpool verður Gerrard inni á miðjunni. Það þykja mér góðar fréttir, held að hann nýtist betur þar en úti á kanti. Þá er Pennant góður á hægri kantinum. Mér líst hins vegar ekki eins vel á vinstri kantinn, þar ætlar stjórinn að halda sig við Zenden.

 


mbl.is Mourinho leggur traust sitt á Drogba
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aurelio sárt saknað...og Garcia

Ekki úrslitin sem ég hafði vonast eftir, vonaði að vörnin héldi og við næðum marki á útivelli. Einn leikmaður fannst mér sérstaklega ekki vera að standa sig nógu vel - Bolo Zenden á vinstri kantinum. Hann fékk boltann hvað eftir annað í ágætri stöðu en náði aldrei að skapa verulega hættu. Hann var lengi að hlutunum, það var handahófskennt ef hann ætlaði að taka menn á og sendingar hans voru oft lélegar. (Ég missti reyndar af drjúgum hluta fyrri hálfleiks en á ekki von á að hann hafi gert miklar rósir þá).

Grátlegt að Aurelio skyldi slíta hásinina á móti PSV. Hann hefði örugglega leyst þessa stöðu mun betur en Zenden. Hefði verið vís til að smella nokkrum hárnákvæmum sendingum inn á kollinn á Crouch eða á félaga hans í teignum, eins og hann var iðinn við áður en hann meiddist. 

Annar leikmaður sem hefði getað plumað sig vel í seinni leiknum er fjarri góðu gamni - Luis Garcia. Hann hefði verið vís til að lauma boltanum rétt yfir línuna eins og í undanúrslitunum í hitteðfirra (fór boltinn annars ekki örugglega inn þá?).Wink


mbl.is Cole tryggði Chelsea sigur á Liverpool
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikil vísindi?

Hvað segir þetta okkur? Sennilega harla lítið. Ekki kemur fram hver spurningin var en svo virðist sem fólk hafi ekki verið spurt á þá leið hvort það treysti ríkisstjórninni betur eða verr eftir umrædda atburðarás heldur hvort það teldi að traust til stórnarinnar hafi tekið breytingum.
 
Erum við ekki komin út í hringavitleysu þegar skoðanakannanir snúast ekki um að kanna skoðanir fólks heldur um að kanna hvaða skoðanir það telji að aðrir hafi?!
 
Annars styttist vonandi í færslu þar sem ég er ekki að finna að einhverju. Kannski ég ætti að reyna að vera aðeins jákvæðari! Wink

mbl.is Meirihluti telur frumvarp um þjóðareign hafa dregið úr trausti á stjórninni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB á ekki afmæli í dag - sorry!

Hið rétta er að Evrópubandalagið (European Community) sem áður hét Efnahagsbandalag Evrópu (European Economic Community), þar til nafni þess var breytt 1993, á afmæli í dag. Evrópusambandið (European Union) varð ekki til fyrr en með Maastrichtsamningunum 1993. Það samanstendur af þremur stoðum - Evrópubandalaginu, samvinnu ríkjanna í lögreglu- og refsimálum, og samvinnu í utanríkis og öryggismálum. Réttari fyrirsögn hefði því verið ,,Fimmtugsafmæli EB fagnað í dag". Fullsnemmt er að fagna hálfrar aldar afmæli fyrirbæris sem er rétt komið á táningsaldur.Wink
 
Alltént eru 50 ár liðin í dag frá undirritun Rómarsáttmálans sem var stofnsáttmáli Efnahagsbandalags Evrópu og Kjarnorkubandalags Evrópu. Sá sáttmáli er nú kjölfestan í rétti ESB. Þau bandalög runnu síðar inn i ESB svo vissulega varð vísirinn að ESB til fyrir réttum 50 árum.
 
Raunar má flækja málið enn frekar með því að benda á að frá 1978 hefur heitið Evrópubandalagið einnig gjarnan verið notað sem samheiti yfir áðurnefnt efnahagsbandalag, Kola- og stálbandalag Evrópu og Kjarnorkubandalag Evrópu. Það er Evrópubandalagið í þessari síðarnefndu merkingu sem myndar eina af þremur fyrrnefndum stoðum ESB. 
 
Heimild: Stefán Már Stefánsson. Evrópusambandið og evrópska efnahagssvæðið. Bókaútgáfa Orators, Reykjavík. 2000. Bls. 41 og áfram.

mbl.is Fimmtugsafmæli ESB fagnað í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hraðlestrarnámskeið gagnslaus?

Ég hef oft nagað mig í handarbökin yfir að hafa ekki farið á hraðlestrarnámskeið, svo spara mætti verulegan tíma í náminu. Ef marka má þessa frétt má ég prísa mig nokkuð sælan með að hafa látið það ógert. Svo virðist á henni sem augað sé þannig gert að við hraðlesturinn hljóti alltaf að verða eitthvað af upplýsingum út undan. Samt sem áður hika  margir aðstandendur hraðlestrarnámskeiða ekki við að fullyrða að lesskilningur og lesminni verði meira en við hefðbundinn lestur ef maður nær tökum á hraðlestri. Það er spurning hverju maður á að trúa.

mbl.is „Hraðlestur“ er málum blandinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skynsemi í stað lýðskrums, takk

Það væri mjög til bóta að fella þetta óljósa hugtak út úr frumvarpinu og leyfa þannig skynseminni að ráða fremur en tilfinningaseminni...nú eða popúlismanum! Flestir ef ekki allir sérfræðingar eru sammála um að hugtakið ,,þjóðareign" hefur enga, eða í besta falli mjög óljósa, lagalega merkingu. Öðru máli gengdi um orðalag á borð við að náttúruauðlindir skuli nýta þjóðinni allri til hagsbóta, en núgildandi orðalag fiskveiðistjórnunarlaga um sameign þjóðarinnar hefur einmitt verið skýrt á þann veg. Vissulega hlyti þó alltaf að verða matskennt hvenær þetta skilyrði væri uppfyllt. Gæti ég t.d. sótt bótarétt á hendur ríkinu ef mér tækist að sýna fram á að ég hefði ekki haft beinan hag af stjórnkerfi fiskveiða, svo dæmi sé tekið? Varlegra væri að orða ákvæðið á þá leið að leitast skuli við að nýta náttúruauðlindirnar allri þjóðinni til hagsbóta.

Ef menn ætluðu hins vegar að ná markmiðum þeirra sem hvað mest kalla eftir svona ákvæði um sameign þjóðarinnar, væri sennilega eina leiðin að kveða einfaldlega á um eignarrétt ríkisins að auðlindunum, þar sem ríkið getur átt eignarrétt en ekki þjóðin. Ekki er ég þó að kalla eftir slíku ákvæði, enda gæti það haft ófyrirséðar afleiðingar.

Ef ekki næst þverpólitísk sátt um frumvarpið, með eða án breytinga, er annars eina vitið að draga það til baka. Stjórnarskrárbreytingum á ekki að þröngva í gegn með naumum meirihluta. Hún á að vera þannig úr garði gerð að um hana ríki sátt. Líklegast er best að sleppa þessu bara að sinni.


mbl.is Rætt um að fella hugtakið þjóðareign út úr frumvarpstexta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki ofsögum sagt!

Það er smá huggun harmi gegn að Ferguson skuli viðurkenna þetta, enda augljós staðreynd öllum þeim sem á horfðu. Hversu ósanngjörn geta úrslit annars orðið í fótbolta? Ég minnist þess hreinlega ekki að hafa séð annað eins og hef ég þó séð ýmislegt. Algerir yfirburðir minna manna nær allan leikinn en allt kom fyrir ekki og hinir pota inn marki í blálokin.

Það er kannski vonandi að færi gefist til hefnda í undanúrslitum eða úrslitum meistaradeildarinnar. Það yrði nú engin smá rimma!

En til hamingju með titilinn Unitedmenn og njótið vel, hann verður varla hrifsaður af ykkur úr þessu. Liðið á titilinn skilið þó ekki verði hið sama sagt um sigur þess í dag. 


mbl.is Alex Ferguson: Vorum stálheppnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband