Lítið að marka mig?

Ég held að það sé vel við hæfi að nota þennan dag til að vekja þessa bloggsíðu af löngum dvala með því að rifja upp eigin skrif frá síðbúnum stuttbuxnaárum. Það er ekki laust við að það fari um mig hrollur við það verk og raunar nægir tilhugsunin ein til þess. Ég lét glepjast af því sem leit út fyrir að vera efnahagslegt góðæri. Ég hélt að það væri afleiðing af farsælli efnahagsstjórn sem byggðist á hægri sinnaðri hugmyndafræði. Það var aðalástæða þess að ég gekk til liðs við Sjálfstæðisflokkinn í byrjun aldarinnar. Haustið 2004 fór ég að taka þátt í pólitískum skifum með stofnun vefritisins Íhald.is. Þá ritstýrði ég um skeið vef Heimdallar, frelsi.is, auk þess að fá birtar greinar víðar, m.a. í dagblöðum. Ég hætti slíkum skrifum alfarið í árslok 2005 og sagði mig loks úr Sjálfstæðisflokknum haustið 2008 í kjölfar bankahruns. Það er mér ekki ljúft að bera niður í eigin skrif en kannski siðferðislega skylt nú á tímum uppgjörs: 

Ánægjuleg dæmi um vel heppnaða einkavæðingu eru sala ríkisbankanna, fyrst Fjárfestingabanka atvinnulífsins og svo Landsbankans og Búnaðarbankans. Ávinningurinn hefur skilað sér til alls þorra almennings þar sem aukin samkeppni hefur skapast og bankarnir farið að kappkosta að bjóða betri kjör. Í því sambandi má nefna lækkaða vexti á lánum til íbúðakaupa, þar sem bankarnir tóku nýverið að undirbjóða Íbúðalánsjóð – nokkuð sem ekki var í spilunum fyrir fáeinum misserum síðan. Eigendur bankanna hafa hagrætt í rekstrinum þannig að þrátt fyrir að kjör neytenda séu nokkru betri en áður er hagnaður bankanna líka meiri, sem skilar sér í fjárfestingum til eflingar atvinnulífsins. 

(Íhald.is, 2. mars 2005 - http://ihald.blog.is/blog/ihald/entry/43771/) 

Hvílíkt og annað eins kjaftæði! Mér er ljóst að ég hefði betur nýtt tímann í eitthvað annað en að grafa undir eigin trúverðugleika með skrifum sem þessum. Þau standa hins vegar eftir sem hörð áminning til mín um að skoða betur hvort skoðanir mínar séu byggðar á haldbærum rökum, sérstaklega ef ég ætla að bera þau á borð fyrir aðra. Ég gæti fundið ýmis fleiri skrif sem ég skammast min fyrir en læt þetta nægja í kvöld. 


mbl.is Ekkert að marka það sem þessi maður segir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 identicon

Tilhamingju !!!!!

Jorgen Jensen (IP-tala skráð) 12.4.2010 kl. 22:20

2 Smámynd: Elvar Geir Sævarsson

Gott ef ég hafi ekki fussað duglega yfir skrifum þínum á þessum tíma.

Elvar Geir Sævarsson, 12.4.2010 kl. 22:26

3 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Er sjalfur gamall Heimdellingur og var mjøg virkur i starfi sjalfstædisflokksins sundur med sjo.

Skil thig gjørsamlega! Glæsilegt af ther ad koma med thetta a bloggi.

Er mest hissa a storum hopi folks sem er vid goda greind og er blindad af thvi ad sjalfstædisflokkurinn se flokkur allra stetta. Eg kommentadi a Facebook i dag svona:

Það sorglega er að í Sjálfstæðisflokknum er til strangheiðarlegt og gott fólk. Fólk sem hefur fylgt honum frá þeim árum sem hann gat talist flokkur allra stétta, af skyldurækni og sakleysi hefur þetta fólk stutt við flokkinn í góðri trú. Flokkurinn hefur passað sig á því að ljúga þetta fólk fullt og talið því trú um að einhver gildi væru í gangi. Gildin þau eru löngu komin langan veg þaðan.

Einar Örn Einarsson, 12.4.2010 kl. 22:40

4 Smámynd: Magnús B Jóhannesson

Ég spyr, er virkilega hægt að kenna frelsinu um aðfarir nokkurra aðila sem fóru ránshendi um bankakerfið? Er það ekki eins og að kenna lögunum um þegar austurevrópsku ræningjagengin hreinsa hvert einbýlishúsið á fætur öðru.

Ég er ekki að segja að menn hefðu ekki getað gert hlutina betur og verið minna meðvirkir með bönkunum, en að kenna frelsinu um er of mikil einföldun að mínu viti.

Magnús B Jóhannesson, 13.4.2010 kl. 00:31

5 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Þorsteinn - blogg þitt var barn síns tíma þegar fólk var lofandi útrásarliðið - þá var enginn búinn að sjá blekkingarnar og lygarnar.

Fólk hrópaði og kallaði lofsyrði í allar áttir.

Það að ráðast gegn flokknum með þessum hætti er ekki stórmannlegt - hver sem raunveruleg ástæða þín var fyrir úrsögninni þá spyr ég þig -

Hvaða flokkur annar hefur staðið fyrir uppbyggingu í þessu landi -??? Flokkurinn hefur ítrekað lent í því að hreinsa upp eftir vinstri stjórnir sem keyrt hafa verðbólgu upp úr öllu valdi og ekki náð saman um nein þau úrræði sem þurfti að ná samstöðu um. Sjá m.a. ummæli Hermanns Jónassonar þegar hann sagði af sér -

Ég veit og vona að´þú gefir þér tíma til þess að skoða málin af sanngirni -

Bestu kveðjur til þín

Ólafur Ingi Hrólfsson, 13.4.2010 kl. 06:09

6 Smámynd: Þorsteinn Magnússon

Ólafur, það er mikill misskilningur að ég sé að ráðast gegn flokknum með færslunni. Með henni er ég að gangast við eigin rangfærslum á árum áður. Nú blasir við að sala ríkisbankanna er ekki ,,dæmi um vel heppnaða einkavæðingu". Ekki er hægt að tala um ávinning af henni sem ,,skilað hafi sér til alls þorra almennings". Þá höfðu undirboð bankanna á íbúðarlánum alvarlegar afleiðingar eins og skýrsla rannsóknarnefndarinnar sýnir. Þá er nokkuð ljóst að aukinn hagnaður bankanna var ekki fyrst og fremst afleiðing af hagræðingu í rekstri.  Það er í raun ótrúlegt hvað mér hefur tekist að koma mikilli vitleysu fyrir í fáum setningum.

Það sem ég er að segja um Sjálfstæðisflokkinn er fyrst og fremst það að þær forsendur sem voru ástæða þess að ég gekk í hann reyndust rangar og því sagði ég mig úr honum. Flokkurinn hefur eflaust komið ýmsu góðu til leiðar í gegnum tíðina. Að öðru leyti ætla ég ekki að tjá mig um þínar fullyðingar enda er færslan fyrst og fremst hugsuð sem sjálfsgagnrýni og hluti af uppgjöri en ég er ekki pólitík lengur.

Magnús, ég held því miður að alltaf verði til menn sem séu tilbúnir að misnota frelsið ef það er of mikið. Þannig getur frelsi þeirra orðið öðrum til tjóns. Ræningjagengin sem þú nefnir ættu auðveldara með að hreinsa einbýlishúsin og komast upp með það ef ekki væru reglur, eftirlit og úrræði til að bregðast við brotum.

Þorsteinn Magnússon, 13.4.2010 kl. 17:51

7 Smámynd: Magnús B Jóhannesson

Eflaust munu menn misnota frelsið enda er græðgi, samkeppni og siðblinda partur af mannlegu eðli. Til þess eru lög og reglur, þ.e. til að beina mönnum frá þess hátta hegðun og draga menn til ábyrgðar fyrir misgörðir sínar. Ein niðurstaða rannsóknarnefndarinnar er að menn hafi brotið lög í bankafylleríinu. Ég bíð spenntur eftir niðurstöðum sérstaks saksóknara og saksóknara, enda vil ég trúa því að menn munu verða dregnir til ábyrgðar enda er þetta stærsta bankarán sögunnar ekkert einkamál okkar íslendinga.

Ég vil hins vegar taka undir með þér að reglur þurfa að herðast. Ég hef ítrekað bent á að skilja beri milli almennrar inn og útlánastarfsemi og fjárfestingabankastarfsemi, líkt og gert var í USA í kringum 1930 með Glass Steigal lögunum. Önnur lög frá USA mætti einnig innleiða s.s. möguleika yfirvalda til að sakfella menn fyrir að fegra stöðuna (misrepresentation) eða lygar í upplýsingagjöf til eftirlitsaðila, o.s.frv.

Eftir stendur að þó að framkvæmd frelsisins hafi verið ábótavant undanfarin ár þá er ekki hægt að kenna frelsinu um. Hafa ber í huga hver andstæðan við frelsið er, ég er ekki viss um að fólk kjósi það frekar. 

Magnús B Jóhannesson, 14.4.2010 kl. 17:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband